Tottenham mætir harðri gagnrýni 28. október 2007 11:32 Juande Ramos NordicPhotos/GettyImages
Forseti Sevilla segist ætla að senda knattspyrnuyfirvöldum bréf þar sem fram kemur að Tottenham hafi með ólögmætum hætti sett sig í samband við þjálfarann Juande Ramos á dögunum. Ramos skrifaði undir samning við Tottenham í gær. Forsetinn segir að forráðamenn Tottenham hafi sett sig í beint samband við þjálfarann í stað þess að ræða við sig - og að það brjóti reglur um ólögmætar viðræður við samningsbundinn þjálfara. "Ef Tottenham vildi Ramos, hefði það átt að tala við mig en ekki beint við hann. Ég mun greina FIFA og UEFA frá þessu," sagði forsetinn í samtali við Sunday Express. Blaðið segir Sevilla heimta 3,5 milljónir punda í miskabætur frá Tottenham fyrir að leyfa þjálfaranum að losna undan samning sínum. Forseti Sevilla er ekki eini maðurinn sem er ósáttur við vinnubrögð Lundúnafélagsins, því Ken Bates, stjórnarformaður Leeds, er líka mjög ósáttur við að hafa heyrt það "úti í bæ" að aðstoðarstjóri hans Gus Poyes væri farinn í viðræður við Tottenham. Þá hefur brottrekstur Martin Jol frá Tottenham verið gagnrýndur harðlega og hann sagði blaðinu The People að frændi sinn hefði sagt sér að ætti að reka sig í miðjum leik Tottenham og Getafe. "Það var frændi minn sem sagði mér þessi tíðindi eftir leikinn við Getafe og þá virtust allir vita þetta nema ég. Það er kjaftæði að ég hafi vitað það fyrir leikinn að ætti að reka mig," sagði Jol. Hann vill ólmur halda áfram að vinna á Englandi en neitar því að hafa rifist heiftarlega við stjórnarformann Tottenham eftir brottreksturinn. "Ég er ekki í deilum við Daniel Levy eða neinn annan hjá félaginu því þeir komu vel fram við mig þann tíma sem ég var hjá félaginu. Ég ætla að taka mér smá frí en svo vil ég gjarnan halda áfram að vinna á Englandi. Ég á hús hérna og dóttir mín er í skóla hérna. Ég finn mig vel á Englandi," sagði Jol
Enski boltinn Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Körfubolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Fleiri fréttir Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Sjá meira