Fjórir hinna handteknu eru læknar 4. júlí 2007 06:00 Lögreglumenn í Southport, Queensland í Ástralíu ræða við íbúa í hverfi þar sem læknir var yfirheyrður í gær vegna hryðjuverkatilræðanna í Bretlandi. Á mánudag var indverskur læknir sem er grunaður um aðild að tilræðunum handtekinn í áströlsku borginni Brisbane. MYND/AP
Að minnsta kosti fjórir menn af þeim átta sem hafa verið handteknir vegna misheppnuðu hryðjuverkatilræðanna í London og Glasgow eru læknar frá Írak, Jórdaníu og Indlandi. Samkvæmt upplýsingum Sky-sjónvarpsstöðvarinnar eru tveir menn til viðbótar, sem handteknir voru í Glasgow á sunnudag, læknanemar á sjúkrahúsi í borginni. Yfirvöld í Glasgow hafa neitað að staðfesta þetta. BBC gengur lengra og heldur því fram að allir mennirnir átta hafi unnið í breska heilbrigðiskerfinu: sjö sem læknar eða læknanemar og einn á rannsóknarstofu sjúkrahúss. Á föstudag aftengdi lögreglan í London sprengjur í tveimur bílum sem stóðu í miðborg Lundúna og á laugardag keyrðu tveir menn jeppa fullan af sprengiefni á flugstöðvarbyggingu Glasgow-flugvallar. Engan sakaði i tilræðunum annan en ökumann jeppans sem liggur alvarlega slasaður á sjúkrahúsi í Glasgow. Að sögn BBC heitir hann Khalid Ahmed og er læknir en lögreglan í Glasgow hefur ekki viljað staðfesta það. Áttundi maðurinn sem var handtekinn heitir Muhammed Haneef og er indverskur læknir. Hann var tekinn höndum á alþjóðaflugvellinum í áströlsku borginni Brisbane á mánudagskvöld. Haneef var á leiðinni til Indlands. John Howard, forsætisráðherra Ástralíu, sagði að lögreglan væri að yfirheyra annan lækni í landinu. Lögreglan handtók svo tvo menn í Blackburn á Norðvestur-Englandi um hádegisbilið í gær á grundvelli laga um hryðjuverkavarnir. Mennirnir, sem vitni sögðu að litu út fyrir að vera frá Suður-Asíu, höfðu náð í átta stór gashylki í iðnaðarhverfi í bænum. Slík gashylki voru notuð í öllum þremur hryðjuverkatilræðunum. Í yfirlýsingu frá lögreglunni kom fram að of snemmt væri að staðfesta hvort handtaka mannanna tengdist hinum tilræðunum þremur. Eftir árásina á Glasgow-flugvöll á laugardag var lýst yfir hæsta vástigi í Bretlandi, sem þýðir að búist er við hryjuverkaárás hvenær sem er, og hefur lögreglan í Bretlandi brugðist skjótt við í rannsókn sinni. Gordon Brown forsætisráðherra tilkynnti í gær, í fyrstu ræðu sinni á þingi eftir að hann tók við völdum, að stofna ætti nýtt þjóðaröryggisráð. Brown mun sjálfur fara fyrir ráðinu sem reglulega mun gefa út áætlun um þjóðaröryggi þar sem sagt verður frá mögulegum ógnum sem steðja að Bretlandi.
Mest lesið Vaktin: Sprengjum rignir enn Erlent Davíð Oddsson er látinn Innlent Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Innlent Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Innlent Allt tiltækt lið slekkur eld í Hafnarfirði Innlent Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Innlent Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Innlent Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Innlent „Ég hef kostað ríkið rúmar sex hundruð milljónir“ Fréttir Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Innlent Fleiri fréttir Melania fer með formennsku á fundi öryggisráðsins Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Sjá meira