Erlent

Fjórir hinna handteknu eru læknar

Lögreglumenn í Southport, Queensland í Ástralíu ræða við íbúa í hverfi þar sem læknir var yfirheyrður í gær vegna hryðjuverkatilræðanna í Bretlandi. Á mánudag var indverskur læknir sem er grunaður um aðild að tilræðunum handtekinn í áströlsku borginni Brisbane.
Lögreglumenn í Southport, Queensland í Ástralíu ræða við íbúa í hverfi þar sem læknir var yfirheyrður í gær vegna hryðjuverkatilræðanna í Bretlandi. Á mánudag var indverskur læknir sem er grunaður um aðild að tilræðunum handtekinn í áströlsku borginni Brisbane. MYND/AP

Að minnsta kosti fjórir menn af þeim átta sem hafa verið handteknir vegna misheppnuðu hryðjuverkatilræðanna í London og Glasgow eru læknar frá Írak, Jórdaníu og Indlandi.

Samkvæmt upplýsingum Sky-sjónvarpsstöðvarinnar eru tveir menn til viðbótar, sem handteknir voru í Glasgow á sunnudag, læknanemar á sjúkrahúsi í borginni. Yfirvöld í Glasgow hafa neitað að staðfesta þetta. BBC gengur lengra og heldur því fram að allir mennirnir átta hafi unnið í breska heilbrigðiskerfinu: sjö sem læknar eða læknanemar og einn á rannsóknarstofu sjúkrahúss.

Á föstudag aftengdi lögreglan í London sprengjur í tveimur bílum sem stóðu í miðborg Lundúna og á laugardag keyrðu tveir menn jeppa fullan af sprengiefni á flugstöðvarbyggingu Glasgow-flugvallar. Engan sakaði i tilræðunum annan en ökumann jeppans sem liggur alvarlega slasaður á sjúkrahúsi í Glasgow. Að sögn BBC heitir hann Khalid Ahmed og er læknir en lögreglan í Glasgow hefur ekki viljað staðfesta það.

Áttundi maðurinn sem var handtekinn heitir Muhammed Haneef og er indverskur læknir. Hann var tekinn höndum á alþjóðaflugvellinum í áströlsku borginni Brisbane á mánudagskvöld. Haneef var á leiðinni til Indlands. John Howard, forsætisráðherra Ástralíu, sagði að lögreglan væri að yfirheyra annan lækni í landinu.

Lögreglan handtók svo tvo menn í Blackburn á Norðvestur-Englandi um hádegisbilið í gær á grundvelli laga um hryðjuverkavarnir. Mennirnir, sem vitni sögðu að litu út fyrir að vera frá Suður-Asíu, höfðu náð í átta stór gashylki í iðnaðarhverfi í bænum. Slík gashylki voru notuð í öllum þremur hryðjuverkatilræðunum. Í yfirlýsingu frá lögreglunni kom fram að of snemmt væri að staðfesta hvort handtaka mannanna tengdist hinum tilræðunum þremur.

Eftir árásina á Glasgow-flugvöll á laugardag var lýst yfir hæsta vástigi í Bretlandi, sem þýðir að búist er við hryjuverkaárás hvenær sem er, og hefur lögreglan í Bretlandi brugðist skjótt við í rannsókn sinni.

Gordon Brown forsætisráðherra tilkynnti í gær, í fyrstu ræðu sinni á þingi eftir að hann tók við völdum, að stofna ætti nýtt þjóðaröryggisráð. Brown mun sjálfur fara fyrir ráðinu sem reglulega mun gefa út áætlun um þjóðaröryggi þar sem sagt verður frá mögulegum ógnum sem steðja að Bretlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×