Armréttur og Allardyce hjá Guðna á morgun 10. nóvember 2007 16:55 Guðni Bergsson hefur í mörg horn að líta í þættinum á morgun Mynd/Anton Brink
Það verður mikið um að vera í þættinum 4-4-2 með Guðna Bergs og Heimi Karls á Sýn 2 á morgun. Þar þarf Guðni Bergsson að standa við gefið loforð og tekur svo símaviðtal við Sam Allardyce, stjóra Newcastle. Heimir lét Guðna lofa því í þættinum um daginn að hann tæki 10 armréttur uppi á borðinu í beinni útsendingu ef Bolton næði ekki að sigra Aston Villa í deildarleik liðanna. Leiknum lauk með jafntefli og þá er bara spurning hvort Guðni standi við stóru orðin á morgun. "Það verður bara að koma í ljós," sagði Guðni þegar Vísir náði tali af honum. "Ég vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið þegar þessu var troðið upp á mig og þetta er nú bara dæmi um það hvað hann heimir getur verið mikill vitleysingur," sagði Guðni hlæjandi. "Það var ekki annað að gera en að taka þessari áskorun fyrir hönd míns liðs, en ég mun ná að hefna mín á Heimi á einn eða annan hátt. Hefndin verður grimmileg - því lofa ég," sagði Guðni. Hann ætlar að taka símaviðtal við Stóra-Sam Allardyce hjá morgun og segist vera feginn að lið hans Newcastle náði jafntefli í grannaslagnum við Sunderland í dag. "Það var eins gott, því maður vill ekki að hann verði of fúll. Við ætlum að ræða við hann um það hvernig það var að taka við Newcastle þar sem væntingarnar eru miklar. Við spyrjum hann hvaða markmið hann hafi sett sér með þetta lið og svo munum við aðeins ræða málefni enska landsliðsins og toppbaráttuna á Englandi," sagði Guðni. Þátturinn 4-4-2 hefst klukkan 19:10 á Sýn 2 á morgun og þá er bara að sjá hvort Guðni stendur við stóru orðin.
Enski boltinn Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Körfubolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Fleiri fréttir Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Sjá meira