Erlent

Vill Zoellick í stað Wolfowitz

Robert Zoellick, fyrrverandi aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, tekur væntanlega við af Paul Wolfowitz sem bankastjóri Alþjóðabankans í byrjun júlí.

George W. Bush Bandaríkjaforseti sagðist í gær vilja fá Zoellick í embættið og enn sem komið er bendir ekkert til annars en að 24 manna framkvæmdastjórn bankans muni fallast á það.

Nýs bankastjóra bíður erfitt verkefni við að endurvekja traust og bæta samskipti, jafnt innan bankans sem út á við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×