Erlent

Hollt að leggja sig yfir daginn

Fylgnin mældist hæst meðal vinnandi karlmanna sem leggja sig. Þeir teljast í 64 prósent minni hættu á að deyja úr hjartasjúkdómi.
Fylgnin mældist hæst meðal vinnandi karlmanna sem leggja sig. Þeir teljast í 64 prósent minni hættu á að deyja úr hjartasjúkdómi. MYND/Getty

Að leggja sig yfir daginn getur dregið úr hættu á að deyja úr hjartasjúkdómi, samkvæmt viðamikilli rannsókn grískra vísindamanna sem sagt er frá á fréttavef BBC.

Sex ára rannsóknir sýndu fram á að þeir sem lögðu sig í hálftíma yfir daginn að minnsta kosti þrisvar sinnum í viku voru í 37 prósent minni hættu en aðrir á að deyja vegna hjartasjúkdóma eftir að tekið hafði verið tillit til heilsufars, aldurs og líkamlegs forms.

Sérfræðingar sögðu að miðdegishvíldin gæti hjálpað fólki að slaka á og þar með draga úr streitu.


Tengdar fréttir

Kýpur sækir um evruaðild

Stjórnvöld á Kýpur sóttu á þriðjudag formlega um inngöngu í myntbandalag Evrópusambandsins. Gera þau sér vonir um að af aðildinni verði um næstu áramót.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×