Erlent

Kýpur sækir um evruaðild

Kýpversk-ar evrur
Kýpversk-ar evrur

Stjórnvöld á Kýpur sóttu á þriðjudag formlega um inngöngu í myntbandalag Evrópusambandsins. Gera þau sér vonir um að af aðildinni verði um næstu áramót.

Þetta staðfesti talsmaður framkvæmdastjórnar ESB í Brussel, en eftir að umsóknin er lögð fram leggur bæði framkvæmdastjórnin og Seðlabanki Evrópu mat á það hvort kýpverskt efnahagslíf uppfylli aðildarskilyrðin. Endanleg ákvörðun verður síðan tekin á leiðtogafundi í sumar. Gangi áformin eftir verður Kýpur fjórtánda evrulandið. Malta stefnir einnig að því að taka upp evruna á næsta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×