Jarðsunginn í heimabæ sínum í dag 3. janúar 2007 05:00 Fyrrverandi og núverandi ráðamenn Á myndinni má meðal annars sjá George W. Bush forseta og Lauru eiginkonu hans, Dick Cheney varaforseta og þrjá fyrrverandi forseta, þá George Bush eldri, Bill Clinton og Jimmy Carter. MYND/AP
Meira en þrjú þúsund manns voru viðstaddir viðhafnarútför Geralds Fords, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sem haldin var í dómkirkjunni í Washington í gær. Meðal gestanna var Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra ásamt öðrum fulltrúum erlendra ríkja. Líkkista Fords hafði í tvo daga legið á viðhafnarbörum í hvelfingu bandaríska þinghússins í Washington þar sem ættingjar hans og fyrrverandi jafnt sem núverandi ráðamenn Bandaríkjanna vottuðu hinum látna virðingu sína. Ræður við útförina héldu George W. Bush forseti, Henry Kissinger, fyrrverandi utanríkisráðherra, og Tom Brokaw, fyrrverandi fréttaþulur NBC-sjónvarpsstöðvarinnar. Eftir athöfnina í Washington í gær var kista Fords flutt til bæjarins Grand Rapids í Michigan, þar sem hann ólst upp. Þar verður hann borinn til grafar í dag að lokinni smærri athöfn fyrir nánustu ættingja og vini. Ford tók við forsetaembættinu árið 1974 þegar Richard Nixon hrökklaðist frá völdum vegna Watergate-málsins. Ford tapaði síðan forsetakosningum fyrir Jimmy Carter rúmlega tveimur árum síðar. Ford lést á heimili sínu í Kaliforníu 26. desember síðastliðinn, 93 ára gamall.
Mest lesið Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Innlent Á leið til Íslands átta vikum eftir slysið Innlent Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni Innlent Logar í yfirgefnum bústað við Elliðavatn Innlent Kettir drápust á meðan eigandinn var á ferðalagi Innlent Sömdu um reglulegar samfarir í ár eftir sambúðarslit Innlent Bæjarstjórinn einn á móti stækkun friðlýsingar Gróttu og Seltjarnar Innlent Tveggja bíla árekstur á Hellisheiði Innlent Sektuð um 23 þúsund krónur vegna tréspíramálsins Erlent Dorrit líkaði aldrei við „slepjulegan“ Epstein Innlent Fleiri fréttir Stærsta flugmóðurskip heims sent aftur til Mið-Austurlanda Evrópa getur ekki dvalið í veröld sem var og þarf að vopna sig Mótmæla banni gegn grænkera „pylsum“ og „hamborgurum“ Gróðurhúsalofttegundir ekki lengur skaðlegar samkvæmt Trump Sektuð um 23 þúsund krónur vegna tréspíramálsins ICE dregur saman seglin í Minneapolis Lofaði öllu fögru í von um sendiherraembættið Greiða atkvæði um hámarksfjölda Svisslendinga Jagland ákærður fyrir spillingu Sprengdu blöðrur með herleysigeisla áður en lofthelginni var lokað Táningsdóttir Kims formlegur arftaki hans Pútín þjarmar að vinsælasta samfélagsmiðli Rússlands Íhugar að senda annað flugmóðurskip til Mið-Austurlanda Efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um þak á íbúafjölda landsins Gallup hættir að mæla ánægju með Bandaríkjaforseta eftir níutíu ára samfellda sögu Fulltrúadeildin samþykkir að fella niður tolla Trump gegn Kanada Leita fórnarlamba fransks barnaníðings sem braut á börnum um allan heim Talin hafa myrt móður sína og stjúpbróður fyrir skotárásina „Þjóðin syrgir með ykkur“ Leitarheimild byggði á löngu afsönnuðum ásökunum um svindl Opna aftur á flugumferð í El Paso eftir drónaflug frá Mexíkó Opnar sig í nýrri bók: „Ég þekkti ekki þessa menn eða þessa konu“ Íri í haldi ICE óttast um líf sitt Rifust um Trump áður en faðir skaut dóttur sína til bana Loka flugvelli El Paso skyndilega og án útskýringa Jagland sviptur friðhelgi Furstadæmin þjálfa uppreisnarmenn í leynilegri herstöð Hætta að skilgreina gróðurhúsalofttegundir sem skaðlegar Einn í yfirheyrslu og ráðist í húsleit í tengslum við hvarf Nancy Guthrie Norðmenn geti ekki útilokað innrás Rússa Sjá meira