Erlent

Gítarar Edge og Hendrix seldust á tugi milljóna

Uppáhaldsgítar Edge í U2 seldist í gær fyrir um 15,6 milljónir króna á uppboði á Hard Rock Café í New York. Það var stofnun Edge sjálfs, Music Rising, sem efndi til uppboðsins í þeim tilgangi að styðja við bakið á tónlistarfólki í New Orleans, sem hafði misst hljóðfæri sín í fellibylnum Katrinu.

Meðal annarra muna sem seldust á uppboðinu má nefna gítar sem Jimi Hendrix átti, sem fór á tæpar 26 milljónir króna, saxafón, sem Bill Clinton fyrrum Bandaríkjaforseti hafði áritað -- sem fór á um 3,4 milljónir og sólgleraugu Bonos.

Alls söfnuðust rúmlega 154 milljónir króna á uppboðinu. The Edge, sem heitir fullu nafni David Evans, stofnaði Music Rising árið 2005 ásamt Bob Ezrin, hljómplötuframleiðenda og Henry Juszkiewicz, stjórnarformaðnni Gibson gítarversksmiðjanna.

Gítarinn sem Edge seldi er af gerðinni Gibson Les Paul og hefur verið notaður í hverri einustu tónleikaferð U2 síðan 1985. Gítar sem Bono hafði áritað seldist fyrir um 11,6 milljónir, prjónahúfa Edge fór á 3,5 milljónir og kringlótt sólgleraugu John Lennons, með bláum glerjum, á tæpar tvær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×