Erlent

Búið að telja nánast öll atkvæði í Frakklandi

Stuðningsmenn Segolene Royal fagna úrslitunum í gærkvöldi.
Stuðningsmenn Segolene Royal fagna úrslitunum í gærkvöldi. MYND/AFP

Þegar búið er að telja nánast öll atkvæði í fyrri umferð frönsku forsetakosninganna er Nicolas Sarkozy, frambjóðandi hægrimanna, í fyrsta sæti með 31,1 prósent atkvæða. Segolene Royal, frambjóðandi sósíalista, er í öðru sæti með 25,8 prósent atkvæða. Þau tvö munu berjast um forsetaembættið í seinni umferð kosninganna sem fram fer 6.maí næstkomandi.

Í þriðja sæti er miðjumaðurinn, Francois Bayrou með 18,5 prósent og í því fjórða hægri öfgamaðurinn Jean-Marie Le Pen með 10,5 prósent atkvæða.

Samkvæmt spá sem birt var í gær myndi Nicolas Sarkozy fá 54 prósent atkvæði í síðari umferð frönsku forsetakosninganna en Segolene Royal 46 prósent ef kosið væri nú.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×