Erlent

Rútuslys í Kína

MYND/AFP
Tuttugu og fjórir létust í suðausturhluta Kína í nótt þegar rúta keyrði fram af brú og féll niður um tæpa tuttugu metra. Fyrr í mánuðinum létust fimm manns og 36 slösuðust í alvarlegu umferðarslysi í Kína.

Ekki liggur fyrir hvað olli slysinu í nótt en mikil rigning hefur verið á svæðinu og vegir víða hálir.

Í dag hófst opinber umferðarvika í Kína þar sem markmiðið er að bæta umferðaröryggi.

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×