Erlent

Forystumaður stjórnar Mjanmar flúinn

Fréttir berast nú um að höfuðforystumaður stjórnar Mjanmar, hershöfðinginn Than Shwe sé flúinn úr landi. Þessar upplýsingar kom frá Burmanefnd Noregs. Sé þetta rétt má reikna með að stjórn Myanmar sé nú í upplausn.

Inger Lise Husøy, formaður Burmanefndarinnar segir í samtali við vefsíðu blaðsins VG að hinn 73 ára gamli Shwe hafi sagt af sér og sé flúinn úr landi. "Ég hef fengið þær fréttir að sést hafi til fjölskyldu Shwe á flugvellinum í Singapore," segir Inger Lise.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×