Helmingur fátækra brátt í Asíu 10. ágúst 2007 05:30 Gömul kona dregur vagn í borginni Jiujiang skammt frá Jangtse-fljótinu. MYND/AFP
Fimmtán prósent Asíubúa, 600 milljónir manna, lifa á minna en 63 krónum daglega, sem jafngildir einum Bandaríkjadal. Þróunarbanki Asíu (ADB) greindi frá þessu í gær við upphaf tveggja daga ráðstefnu á vegum Alþjóðlegu þróunarrannsóknarstofnunarinnar (IFPRI). Þrátt fyrir gífurlegan hagvöxt undanfarna þrjá áratugi eru hungur og fátækt enn útbreidd í þessari fjögurra milljarða manna heimsálfu. „Milljónum hefur verið hjálpað upp úr fátækt, en milljónir sitja enn eftir, sérstaklega í sveitahéruðum,“ sagði Joachim von Braun, forstöðumaður IFPRI. Talið er að árið 2015 verði helmingur fátækra íbúa heimsins í Asíu og benda bestu spár til að þrír fjórðu muni búa í sveitahéruðum. Á sama tímabili er því spáð að Asía muni leggja til nærri helming af vergri landsframleiðslu í heiminum samkvæmt Þróunarbanka Asíu. „Það er kaldhæðnislegt að ótrúlegur hagvöxtur Austur-Asíu, sem byggðist á miklum gróða úr landbúnaðargeiranum, er nú að stuðla að því að auka tekjuójöfnuð milli þeirra sem búa í borgum og þeirra sem búa í sveitum,“ sagði C. Lawrence Greenwood, aðstoðarforstjóri IFPRI. Setja þarf aukinn kraft í atvinnusköpun á landsbyggðinni sem er lykilatriði í að draga úr fátækt að sögn Braun sem segir leiðir til þess liggja í nýsköpun í tækni og stofnanaumhverfi.
Mest lesið Segir Kúbu brátt munu falla Erlent Alvöru inniveður um helgina Innlent Þurfi ekki að óttast bílnúmeralesara við Sorpu Innlent Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku Innlent Listamönnum fækkar ört Innlent Alvarlegt umferðarslys við Munaðarnes Innlent Hvalfjarðargöng lokuð Innlent Kristinn hafði betur gegn Alexöndru og verður oddviti Pírata Innlent Truflanir víða vegna eldingaveðurs Innlent Enn frekari dráttur á máli Margrétar Innlent Fleiri fréttir Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Telja sjávarhæð verulega vanmetna sem gæti ógnað milljónum manna Játar að hafa haldið við aðstoðarkonu sem kveikti í sér Bæta við einu geimskoti og stefna á tunglið 2028 Íhugar að reka Noem eftir deilur við þingmenn Reyna að vernda líf áhafnar annars íransks skips Ráðast á bandarískt olíuflutningaskip en sverja af sér árás á Tyrkland Bondi neydd til að svara spurningum um Epstein-málið Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Taka beri orðum bandarískra stjórnvalda um stöðuna í Íran með fyrirvara Sökktu skipi með tundurskeyti í fyrsta sinn frá seinna stríði Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Danskur öfgamaður ákærður fyrir nauðgunarlýsingar Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Græningjar teknir fram úr Verkamanna- og Íhaldsflokki Vaktin: Átökin breiðast enn út Sjá meira