Erlent

Mæðgin drukknuðu við vesturströnd Jótlands

Tveir þýskir ferðamenn, móðir og sonur, drukknuðu í sjónum úti við danska bæinn Söndervig á vesturströnd Jótlands í gær. Pilturinn var á sundi þegar sterk undiralda hreif hann með sér á haf út. Móðirinn gerði tilraun til að bjarga syni sínum með fyrrgreindum afleiðingum. Björgunarbátar frá nærliggjandi bæjum sem og björgunarþyrlur voru sendar út til leitar að mæðginum. Lík konunnar fannst fljótlega en ekki hefur ennþá tekist að finna piltinn. Konan var 41 árs gömul en pilturinn 18 ára. Tíu manns hafa drukknað við strendur Danmerkur undanfarna viku vegna sterkra strauma þar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×