Erlent

Þriðjungur Íraka þarf á neyðaraðstoð að halda

Þriðjungur Íraka þarf á neyðaraðstoð að halda. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá mannúðarsamtökunum OXFAM og írökskum hjálparsamtökum. Í skýrslunni segir að ríkisstjórn Íraks takist ekki að sjá allt að átta milljónum manna fyrir grunnþörfum á borð við vatn, viðunandi hreinlætisaðstæður, mat og húsaskjól. Þá segir að skálmöldin í landinu skyggi hve slæmur aðbúnaður fólks er á stríðssvæðunum. Fjórar milljónir manna hafa flúið heimili sín frá upphafi stríðsins árið 2003.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×