Erlent

Virðast vera að ná saman um viðskiptaþvinganir

Ahmadinejad Íransforseti
Ahmadinejad Íransforseti AP

Sendiherrar stórvelda hjá Sameinuðu þjóðunum virðast vera að ná saman um viðskiptaþvinganir á hendur Íran vegna kjarnorkuáætlunnar landsins. Enn standa þó Kínverjar og Rússar, sem eiga talsverðra viðskiptahagsmuna að gæta, gegn hörðum þvingunum.

Sendifulltrúar ríkjanna fimm sem eiga fastafulltrúa í Öryggisráðinu, Bandaríkjanna, Bretlands, Frakklands, Rússlands og Kína funduðu í gær ásamt fulltrúa Þjóðverja og sögðu þeir eftir fundinn að þokast hafi í átt til samkomulags. Þeir segja mikilvægt að koma fram sem heild gagnvart Íran og sýna í verki óánægju með að þar í landi sé auðgað úran. Það hefur hins vegar ekki reynst auðvelt að komast að samkomulagi.

Fulltrúi Breta segir að markmiðið með viðræðunum sé að finna aðferðir sem miði ekki að því að refsa írönsku þjóðinni heldur frekar að reyna að hvetja stjórnvöld til að láta af kjarnorkuáætlunum. Ahmadinejad Íransforseti sagði í gær að hann vildi áheyrn Öryggisráðsisn þar sem hann ætlar að verja áætlanir stjórnvalda í Íran sem hann segir friðsamlegar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×