Erlent

Göng milli Evrópu og Afríku

Gíbraltar-kletturinn
Gíbraltar-kletturinn Getty Images

Nú eru uppi áform um að tengja saman Evrópu og Afríku með göngum á milli Spánar og Marokkó undir Gíbraltarsundið. Yfirvöld í löndunum tveimur hafa átt í viðræðum um verkefnið, rúmlega 38 kílómetra löng lestargöng þar sem lestin mundi bera farþega, bíla og fragt á milli álfanna.

Áætlað er að verkið hefjist árið 2008 og muni fullklárað kosta á bilinu 1000 til 1700 milljarða króna. Sökum þess hve mikill straumur er í Gíbraltarsundinu er sjávarbotninn nokkuð óstöðugur og því er áætlað að að göngin verði meira en 500 metra undir sjávarbotninum.

Í raun er um að ræða þrjú göng, tvö fyrir lestar í sitthvora áttina og þar á milli mjórri þjónustugöng. Rætt hefur verið um göngin allt síðan 1980 en nú fyrst treysta menn sér tæknilega og fjárhagslega til að ráðast í verkið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×