Erlent

USS Cole-fjölskyldur kæra ríkisstjórn Súdan

USS Cole skömmu eftir sprenginguna í október 2000
USS Cole skömmu eftir sprenginguna í október 2000 Getty Images

Ríkisstjórn Súdan hefur verið ákærð fyrir að aðstoða hryðjuverkamenn við árásina á bandaríska herskipið USS Cole við strendur Jemen haustið 2000 en árásin varð 17 bandarískum sjóliðum að bana. Það eru fjölskyldur sjóliðanna sem kæra ríkisstjórnina og krefjast yfir 100 milljóna bandaríkjadala í bætur.

Fjölskyldurnar segja ríkisstjórnina hafa aðstoðað hryðjuverkasamtökin al-Kaída og leiðtoga þeirra Osama Bin Laden með því að veita þeim fjármuni og tækniaðstoð, leyft þeim að halda úti þjálfunarbúðum, reka fyrirtæki og jafnvel látið þeim í té diplómatavegabréf. Súdanska ríkisstjórnin hefur vísað þessum ásökun á bug og segjast aldrei hafa haft tengsl við al-Kaída.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×