Erlent

Hörð gagnrýni á Súdansstjórn

Louise Arbour Mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna.
Louise Arbour Mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna. MYND/AFP

Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna gagnrýndi í gær stjórnvöld í Súdan vegna mannréttindabrota í Darfúr-héraði.

Í harðlega orðaðri skýrslu, sem birt var í gær, segir ráðið að Sameinuðu þjóðirnar verði að grípa til ráðstafana til að vernda íbúa héraðsins gegn hernaði á hendur þeim, sem kostað hefur 200 þúsund manns lífið og stjórnin í Súdan er sögð bera ábyrgð á.

Óvenjulegt þykir að nefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna taki jafn afdráttarlaust til orða. Stjórnin í Súdan ætlar að svara þessari gagnrýni í dag þegar fulltrúi hennar ávarpar Öryggisráðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×