Erlent

Snoop Dogg handtekinn í Stokkhólmi

Snoop Dogg á tónleikum sínum í Egilshöll fyrir tæpum tveimur árum
Snoop Dogg á tónleikum sínum í Egilshöll fyrir tæpum tveimur árum Mynd/Teitur

Rappstjarnan og Íslandsvinurinn Snoop Dogg var handtekinn í Stokkhólmi í nótt grunaður um að hafa gerst brotlegur við fíkniefnalöggjöf. Lögregla gerði skipulagt áhlaup á hótelherbergi kappans og fann þar meint fíkniefni, efni sem að sögn lögreglu „lykta eins og marijúana". Snoop var handtekinn ásamt 23 ára gamalli konu sem var gestur hans á hótelherberginu. Talsmaður kappans vísaði ásökunum lögreglu á bug og sagði tóbak það eina sem rapparinn hafi verið að reykja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×