Erlent

Chirac hættir í vor

AP

Jacques Chirac Frakklandsforseti lýsti því formlega yfir í gærkvöldi að hann hyggðist ekki sækjast eftir endurkjöri í forsetakosningum í vor. Þá lýkur 45 ára ferli hans sem áberandi stjórnmálamanns. Hann hefur gengt embætti forseta í 12 ár, frá árinu 1995. Það eru flokksbróðir Chirac, Nicolas Sarkozy og sósíalistinn Segolene Royal sem helst berjast um embættið fyrir kosningarnar í vor og svo óvæntur keppinautur þeirra, miðjumaðurinn Francois Bayrou sem hefur í könnunum mælst mjög nálægt þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×