Erlent

Skógareldar á óvenjulegum tíma í Kaliforníu

AP

Meira en 1200 manns hafa neyðst til að yfirgefa heimili sín í Orange-sýslu í Suður-Kaliforníu vegna skógarelda sem þar nú geysa. Á þessum slóðum hefur verið margfalt þurrara en í meðalári síðustu mánuði.

Þetta er óvenjulegur tími fyrir skógarelda á þessum slóðum en yfirleitt geysa þeir helst yfir sumartímann og á haustin, frá júní og fram í október en óvenju miklir hitar hafa verið á þessum slóðum undanfarið og um helgina náði hitinn hæst 32 gráðum.

Þá er þetta einn þurrasti vetur á þessum slóðum í manna minnum, minna en 65 millimetrar hafa fallið af regni á þessum slóðum síðan í júlí í fyrra en í meðalári falla þar nær 300 millimetrar af regni. Þá er raki afskaplega lítill, mælist undir 5 prósentum í lofti. Þá spá veðurfræðingar áframhaldandi þurrkum á svæðinu.

Lögregla rannsakar nú ábendingar um að bíll sem kveikt var í til að fela sönnunargögn hafi verið upptök að eldinum. Meira en 800 slökkviliðsmenn hawfa barist við eldinn en vegna mikils vindhraða hefur verkið reynst þeim erfitt. Bæði hafa verið notaðar þyrlur og flugvélar til að berjast við eldinn. Neyðarskýli hafa verið sett upp í skólum og félagsmiðstöðvum fyrir þá sem hafa þurft að yfirgefa heimili sín.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×