Erlent

Fólk varað við að kyssast

Kínversk stjórnvöld vara fólk við því að kyssast mikið á almannafæri, því slíkt athæfi gæti náðst á öryggismyndavélar og vakið grun um afbrot.



Fréttastofan Xinhua segir að „innilegar athafnir gætu í byrjun flokkast undir „mannrán“ eða „rán“ í tölvunum, sem eru forritaðar til að nema brot á öruggri fjarlægð milli fólks.“ Lögreglumenn á vakt, sem fylgjast með vélunum, ættu þó að meta í hverju tilviki hvort hætta sé á ferðum. Á næstunni verða sett upp viðvörunarskilti fyrir ástfangin pör um að myndavélar séu að fylgjast með.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×