Erlent

Olmert segist ætla að semja við Abbas

Utanríkisráðherrar Egyptalands og Jórdaníu gengu á fund stjórnvalda í Jerúsalem í gær til að kynna formlega fyrir þeim friðaráætlun Arababandalagsins. Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, segist hins vegar ekki ætla að bíða eftir Arababandalaginu, heldur semja beint við Mahmoud Abbas um stofnun Palestínuríkis.



Olmert staðfesti þetta á blaðamannafundi með Shimon Peres Ísraelsforseta í gær. Olmert lagði þó áherslu á að engar tímasetningar lægju fyrir. Hugmyndin er sú að Palestínuríki verði stofnað á Gaza-svæðinu og stærstum hluta Vesturbakkans, en byrjað verði á að semja um stjórnfyrirkomulag hins nýja ríkis. Að því búnu verði hægt að ræða endanleg landamæri.



Friðartillögur Arababandalagsins felast í því að 22 aðildarríki bandalagsins viðurkenni Ísraelsríki gegn því að Ísraelar afhendi allt land sem þeir hertóku í stríðinu 1967.



Ísraelsstjórn hafnaði þessari friðaráætlun þegar Arababandalagið kom fyrst fram með hana árið 2002, þegar uppreisn Palestínumanna var í hámarki, en dró nokkuð úr andstöðu sinni eftir að Arababandalagið ítrekaði boð sitt í mars síðastliðnum. Ísraelar tóku þá vel í boðið og sögðu það geta orðið grundvöll að frekari viðræðum.



Mark Regev, talsmaður utanríkisráðuneytisins í Ísrael, sagði þessa heimsókn tvímælalaust vera sögulega: „Þetta er í fyrsta skipti sem Arababandalagið sendir fulltrúa sína til Ísraels.“



Ahmed Aboul Gheit, utanríkisráðherra Egyptalands, hvatti Ísraelsmenn til að hugleiða þetta friðartilboð af fullri alvöru.



„Við erum að rétta út til ykkar friðarhönd frá öllum löndum þessa heimshluta,“ sagði hinn jórdanski starfsbróðir hans, Abdul Ilah Khatib.

Þeir hittu að máli bæði Shimon Peres forseta, Ehud Olmert forsætisráðherra, Tzipi Livni utanríkisráðherra og Ehud Barak varnarmálaráðherra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×