Marcus Bent er leikmaður 17. umferðar 17. desember 2007 12:47 NordicPhotos/GettyImages
Framherjinn Marcus Bent hjá Wigan fór á kostum í fjörugasta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Hann skoraði þrennu í sigri Wigan á Blackburn í sveiflukenndum 5-3 sigri heimamanna. Smelltu hér til að sjá myndband af leikmanni 17. umferðar - Marcus Bent. Marcus Bent er lánsmaður hjá Wigan frá 1. deildarliði Charlton og honum hefur m.a. verið ætlað að fylla skarð landsliðsmannsins Emile Heskey sem hefur átt við meiðsli að stríða í vetur. Bent er 29 ára gamall og hefur spilað með 10 liðum á 12 ára ferli í enska boltanum. Líklega hafa fæstir reiknað með því að Bent myndi bylta leik Wigan þegar hann kom til liðsins að láni, en hann hefur með frammistöðu sinni í vetur varpað skugga á nafna sinn og fyrrum liðsfélaga hjá Charlton, Darren Bent, sem var keyptur á metfé til Tottenham í sumar en hefur lítið sem ekkert sýnt hjá Lundúnaliðinu. Marcus Bent lét heldur betur til sín taka um helgina þegar Wigan tók á móti Blackburn. Hann skoraði eitt af fyrstu þremur mörkum Wigan sem komst í 3-0 í leiknum. Roque Santa Cruz fór sömuleiðis á kostum í liði Blackburn og þrenna frá honum jafnaði leikinn þegar um hálftími var til leiksloka. Það var svo Bent sem kláraði dæmið með tveimur mörkum og setti því eftirminnilega þrennu. "Við skulum vona að Marcus nái að spila svona vel áfram, því ég á ekki von á því að sjá Emile Heskey í liðinu næstu vikurnar," sagði Steve Bruce, stjóri Wigan eftir sigurinn - sem var sá fyrsti í átta leikjum. Fjarvera Emile Heskey úr framlínu liðsins hefur einmitt verið ein af ástæðum fyrir dræmu gengi Wigan, en nýi stjórinn Bruce vonar að Bent haldi áfram þar sem frá var horfið í jólatörninni. "Marcus er búinn að vera frábær síðan hann kom hingað og spilaði vel í leikjunum tveimur á undan. Hann hefur lagt mjög hart að sér og mun þurfa að gera það áfram í ljósi meiðsla Heskey." Nafn: Marcus Nathan Bent Fæddur: 19. maí, 1978 í London á Englandi Félög: Brentford, Crystal Palace, Port Vale, Sheffield United, Blackburn, Ipswich, Leicester (lánsmaður), Everton, Charlton og Wigan (lánsmaður). Númer: 23.
Enski boltinn Mest lesið Yfirlýsing UEFA: Óskiljanleg ákvörðun sem grefur undan trúverðugleika HM Fótbolti Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti Henderson meiddist illa á hendi í fagnaðarlátunum: „Þetta lítur illa út“ Fótbolti Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Skítafýla af þessu“ Fótbolti Frækinn sigur Englendinga á Azteca Fótbolti Sepp Blatter: „Rauðum spjöldum er ekki snúið við með pólitískum símtölum“ Fótbolti Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Fótbolti Banabiti Brassa var þegar Ancelotti setti Neymar inn á Fótbolti Rann til á skilti og spilar ekki meira á HM Fótbolti Ronaldo á sínu síðasta HM: „Þið hafið reynt að drepa mig í 23 ár“ Fótbolti Fleiri fréttir Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Sjá meira