Enski boltinn

Marcus Bent er leikmaður 17. umferðar

NordicPhotos/GettyImages

Framherjinn Marcus Bent hjá Wigan fór á kostum í fjörugasta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Hann skoraði þrennu í sigri Wigan á Blackburn í sveiflukenndum 5-3 sigri heimamanna.

Smelltu hér til að sjá myndband af leikmanni 17. umferðar - Marcus Bent. 

Marcus Bent er lánsmaður hjá Wigan frá 1. deildarliði Charlton og honum hefur m.a. verið ætlað að fylla skarð landsliðsmannsins Emile Heskey sem hefur átt við meiðsli að stríða í vetur.

Bent er 29 ára gamall og hefur spilað með 10 liðum á 12 ára ferli í enska boltanum. Líklega hafa fæstir reiknað með því að Bent myndi bylta leik Wigan þegar hann kom til liðsins að láni, en hann hefur með frammistöðu sinni í vetur varpað skugga á nafna sinn og fyrrum liðsfélaga hjá Charlton, Darren Bent, sem var keyptur á metfé til Tottenham í sumar en hefur lítið sem ekkert sýnt hjá Lundúnaliðinu.

Marcus Bent lét heldur betur til sín taka um helgina þegar Wigan tók á móti Blackburn. Hann skoraði eitt af fyrstu þremur mörkum Wigan sem komst í 3-0 í leiknum. Roque Santa Cruz fór sömuleiðis á kostum í liði Blackburn og þrenna frá honum jafnaði leikinn þegar um hálftími var til leiksloka. Það var svo Bent sem kláraði dæmið með tveimur mörkum og setti því eftirminnilega þrennu.

"Við skulum vona að Marcus nái að spila svona vel áfram, því ég á ekki von á því að sjá Emile Heskey í liðinu næstu vikurnar," sagði Steve Bruce, stjóri Wigan eftir sigurinn - sem var sá fyrsti í átta leikjum. Fjarvera Emile Heskey úr framlínu liðsins hefur einmitt verið ein af ástæðum fyrir dræmu gengi Wigan, en nýi stjórinn Bruce vonar að Bent haldi áfram þar sem frá var horfið í jólatörninni.

"Marcus er búinn að vera frábær síðan hann kom hingað og spilaði vel í leikjunum tveimur á undan. Hann hefur lagt mjög hart að sér og mun þurfa að gera það áfram í ljósi meiðsla Heskey."

Nafn: Marcus Nathan Bent

Fæddur: 19. maí, 1978 í London á Englandi

Félög: Brentford, Crystal Palace, Port Vale, Sheffield United, Blackburn, Ipswich, Leicester (lánsmaður), Everton, Charlton og Wigan (lánsmaður).

Númer: 23.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×