Erlent

Bandaríkjamenn efins um fréttir frá Norður-Kóreu

Mynd/AFP

Bandaríkjamenn segjast efast um fréttir þess efnis að Norður-Kóreumenn séu þegar byrjaðir undirbúning að því að slökkva á kjarnaofni sínum í Yongbon. Í gær bárust af því fréttir að á gervihnattamyndum sæist aukin starfsemi við kjarnorkuverið, sem aftur þótti benda til þess að Norður-Kóreumenn væru að slökkva á því. Á laugardaginn rann út 60 daga frestur sem Norður-Kóreumenn höfðu til að slökkva á kjarnorkuverinu og því hafa þeir þegar brotið eitt ákvæði samnings sexveldanna svokölluðu síðan í byrjun febrúar. Það tafði að vísu allt ferlið að Norður-Kóreumenn neituðu að halda áætlununum áfram á meðan fjármunir sem þeir áttu á banakreikningi í Macau lágu þar frystir. Peningana fengu þeir svo aftur seint og síðar meir. Enn þykir von til þess að samkomulag sexveldanna geti haldið og að Norður-Kóreumenn láti alfarið að kjarnorkuáætlunum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×