Erlent

Hörð átök milli stjórnvalda og Tamíltígra á Srí Lanka

MYND/AP

Hörð átök hafa í dag staðið milli hersveita stjórnvalda á Srí Lanka og uppreisnarmanna Tamíltígra á norðurhluta eyjunnar. Tamíltígrar segjast hafa drepið 30 hermenn og talsmenn hersins segjast hafa drepið yfir 50 uppreisnarmenn í átökunum en þær tölur hafa ekki fengist staðfestar.

Vopnahlé er að nafninu til í gildi milli stjórnvalda og uppreisnarmanna á eyjunni en engu að síður hefur verið róstursamt þar undanfarin misseri. Þannig hafa yfir fjögur þúsund manns fallið á síðustu 15 mánuðum. Síðast í gær voru tveir starfsmenn Rauða krossins á eyjunni teknir af lífi eftir að þeim hafði verið rænt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×