Erlent

Til minningar um Ungdomshuset

Mynd/Nyhedsavisen

Meira en þúsund ungmenni hafa í kvöld safnast saman á „Ground 69", þar sem Ungdomshuset á Norðurbrú stóð árðu. Þar var í kvöld kyrrðarstund til minningar um húsið og starfsemi þess. Lögregla fylgdist með úr fjarlægð en skipti sér ekki af ungmennunum.

Fjórir gítarleikarar og söngkona héldu lágstemmda tónleika, varðeldur logaði og ungmennin sötruðu öl fyrir neðan graffití-teikningu sem stafar „69 - að eilífu". Allt fór vel fram og án vandræða og svo virðist sem óeirðabálið á Norðurbrú sé endanlega slokknað, þó minningareldurinn um Ungdomshuset logi enn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×