Kýpur-Grikkir fella aðskilnaðarmúrinn 10. mars 2007 03:45 Danskur ferðamaður beygir sig eftir mola úr múrnum.
Kýpur-Grikkir hafa rifið niður hluta af fjögurra metra háum múrvegg sem undanfarna áratugi hefur skipt höfuðborginni Nikosíu í tvo hluta. Tugir manna fylgdust með seint á fimmtudagskvöld þegar tveimur jarðýtum var beitt á múrinn í Ledra-götu, sem hefur verið lokuð frá því á sjöunda áratug síðustu aldar. Að niðurrifinu loknu settu grísku hermennirnir upp létta girðingu sem auðvelt er að fjarlægja. „Þetta er fyrsta skrefið og sýnir velvilja af okkar hálfu,“ sagði Christodoulos Pashiardis, talsmaður stjórnar Kýpur-Grikkja. Tassos Papadopoulos forseti segir ákvörðun um þetta hafa verið tekna fyrir tveimur vikum þótt engin tilkynning hafi verið gefin um það fyrr en niðurrif múrsins hófst. „Ég tel að þeir hafi tekið þessa ákvörðun eftir að hafa verið beittir þrýstingi. Þetta er jákvætt skref,“ sagði Rasit Pertev, starfsmaður á skrifstofu forseta Kýpur-Tyrkja. Hann sagði niðurrif múrsins „sögulegan viðburð“ sem kom tyrkneskum ráðamönnum á Kýpur algerlega í opna skjöldu. Utanríkisráðherra Kýpur-Grikkja, Giorgos Lillikas, hvatti síðan stjórnvöld í Tyrklandi til þess að bregðast við þessum tíðindum með því að draga herlið sitt burt frá tyrkneska svæðinu á norðurhluta eyjunnar „svo hægt verði að opna landamærahlið fyrir borgarana.“ Þegar Evrópusambandið veitti gríska hlutanum aðild árið 2004 strönduðu viðræður um sameiningu eyjunnar, en Tyrkland er eina ríkið sem viðurkennir sjálfstæði tyrkneska hlutans.
Mest lesið Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Innlent Andrew handtekinn á heimili sínu Erlent „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Innlent „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Innlent „Mitt mat að þetta sé ekki peninganna virði“ Innlent Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Innlent Guðmundi Inga hafnað Innlent Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Innlent „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Erlent Lögregla fylgdist með netsvikum í rauntíma Innlent Fleiri fréttir „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Yfir þúsund grunaðir barnaníðingar handteknir í hverjum mánuði Segir Trump setja ósanngjarnan þrýsting á Úkraínu Viðræður gengu ágætlega en ekkert fast í hendi Friðrik leggur land undir fót til að stappa stálinu í Grænlendinga Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Bandarískir hermenn í Nígeríu Colbert bannað að birta viðtal við Demókrata Skutu eldflaugum á Hormuz-sund þegar viðræður hófust Sjá meira