Erlent

Hiti færist í baráttuna

Finnski dómsmálaráðherrann Leena Luhtanen ætlar ekki að víkja úr ráðherraembætti vegna ásakana um að hún hafi borgað auglýsingar undir borðið í kosningabaráttu árið 2004. Luht­anen hafnar þessum ásökunum sem birtust í finnska eftirmiðdagsblaðinu Ilta Lehti.

Greinilegt er að hiti hefur færst verulega í leikinn í kosningabaráttunni í Finnlandi en finnska þjóðin gengur til kosninga eftir viku. Luhtanen segir í Helsingin Sanomat að hún muni fara yfir fréttaflutninginn með sérfræðingum og ákveða síðan framhaldið. Luhtanen var samgönguráðherra árið 2004.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×