Ég kæmist ekki í nokkurt lið í dag 8. október 2007 16:51 Le Tissier skoraði 55 mörk á tveimur tímabilum þegar hann lék sem miðjumaður hjá Southampton um miðjan síðasta áratug NordicPhotos/GettyImages
Þeir sem fylgst hafa með enska boltanum í nokkra áratugi muna eflaust flestir eftir hinum magnaða Matt Le Tissier sem gerði garðinn frægan með Southampton fyrir um 15 árum síðan. Le Tissier skoraði 209 mörk fyrir Southampton á sínum tíma en segir að hann væri að hefja ferilinn í dag myndi hann líklega ekki komast í neitt af liðunum í ensku úrvalsdeildinni. Le Tissier var mjög umdeildur leikmaður og spilaði aðeins átta landsleiki þrátt fyrir að skora 209 mörk í 540 leikjum fyrir lið Southampton - sem oftar en ekki var í bullandi fallbaráttu. Hann var gagnrýndur mikið fyrir að vera seinn og úthaldslítill, en allir eru sammála um að hann hafi haft einstaka hæfileika. Hann segir að ef hann hefði byrjað ferilinn í dag, hefði hann líklega ekki komist í byrjunarlið neinna af liðunum í úrvalsdeildinni. "Ef ég væri að koma inn núna hefði ég klárlega þurft að vera í miklu betra formi en ég var á sínum tíma. Ég var ekki mesti íþróttamaðurinn í hópnum en ég var í sæmilegu formi. Ég var samt ekki í neinu toppformi - það var aldrei mín sterkasta hlið því ég hafði hreinlega ekki lungun í það," sagði Tissier. "Ég er ekki viss um að ég hefði komist í nokkurt lið í dag því ég gat ekki hlaupið 100 metra á undir 11,5 sekúndum og ég á ekki von á að ég hefði komist í nokkurt lið á hæfileikunum einum saman," sagði Tissier. Hann segist undrast í hve góðu formi leikmenn eru í dag. "Ég sá Portsmouth spila um daginn. Þeir voru með einhverja sex leikmenn sem voru hátt í 190 cm á hæð en þeir voru allir öskufljótir og liprir. Þetta er það sem stjórarnir eru að leita að í dag. Ég komst kannski upp með að vera ekki í besta forminu af því ég var hjá litlu félagi og það er kannski út af þessu sem ég fékk ekki fleiri landsleiki," sagði Tissier, sem gerði það gott undir stjórn Alan Ball á sínum tíma. "Alan byggði lið í kring um mig og undir hans stjórn spilaði ég 64 leiki og skoraði í þeim 45 mörk, en á þeim tíma neitaði Terry Wenables að velja mig í enska landsliðið," sagði Tissier. Hann skoraði 30 mörk sem miðjumaður hjá Southampton leiktíðina 1993-94.
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Bara einn í flugvélinni heim af HM Sport Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Enski boltinn Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Enski boltinn Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti Fleiri fréttir Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Sjá meira