Elano er leikmaður 9. umferðar 8. október 2007 11:38 Elano fór hamförum á ný með City um helgina NordicPhotos/GettyImages
Brasilíumaðurinn Elano fór hamförum með Manchester City aðra vikuna í röð þegar hann skoraði tvö marka liðsins í 3-1 sigri á Middlesbrough. Fyrir viku síðan héldu breskir fjölmiðlar ekki vatni yfir frammistöðu Elano gegn Newcastle United, en hann var enn betri nú um helgina. City hélt áfram að koma á óvart um helgina og hélt þriðja sætinu með öruggum sigri á Boro. Fyrsta markið hjá Elano kom eftir fallega hælsendingu frá Michael Johnson við vítateiginn og annað markið hans kom eftir stórkostlega aukaspyrnu þar sem Mark Schwarzer markvörður átti aldrei möguleika á að verja. Byrjun Sven-Göran Eriksson með City hefur heldur betur komið á óvart í haust og það er ekki síst Brasilíumanninum skemmtilega að þakka, en hann er orðinn æ meira áberandi í leik liðsins. "Manchester er æðisleg borg," sagði Elano nýlega í viðtali við Guardian, en vel má vera að frammistaðan á vellinum hafi hjálpað honum að fóta sig við nýjar aðstæður eftir að hann kom frá Úkraínu. "Elano hefur alltaf verið mjög mikilvægur leikmaður fyrir okkur. Ef við látum hann hafa boltann vitum við að hann mun halda honum og nú er hann farinn að skora mörk - svo við getum ekki beðið um mikið meira frá honum. Hann er nú kominn í betra form og hamast á fullu í æfingasalnum, sem er mjög gott," sagði Eriksson, en Elano var ekki í sérstaklega góðu formi þegar hann kom til félagsins. "Það er óvíst að hann nái að spila svona vel í hverjum einasta leik, en það kæmi mér ekki á óvart þó hann ætti eftir að eiga betri leiki en þennan. Það þarf svo sannarlega ekki að kenna þessum manni neitt í knattspyrnufræðunum," sagði Eriksson ánægður.Nafn: Elano Ralph Blumer Fæddur: 14. júní, 1981, í Sao Paulu í Brasilíu. Félög: Guarani, Internacional, Santos, Shaktar Donetsk og Manchester City.Númer: 11
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Bara einn í flugvélinni heim af HM Sport Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Fleiri fréttir Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Sjá meira