Erlent

Japanir hóta að segja sig úr hvalveiðiráðinu

Japanir hótuðu að segja sig úr Alþjóða hvalveiðiráðinu á lokadegi ársþingsins í gær eftir að þeim mistókst að fá frumbyggjakvóta fyrir veiðimenn í fjórum strandhéruðum í Japan. Hafa þeir ennfremur dregið til baka boð sitt um að halda ársþing ráðsins árið 2009. Ársþingi Alþjóða hvalveiðiráðsins lauk í nótt að íslenskum tíma.

Japönsk stjórnvöld hafa lengi reynt að fá samþykkta frumbyggjakvóta fyrir japanska hvalveiðimenn en án árangurs. Niðurstaðan í gær voru mikil vonbrigði fyrir Japani og hafa þeir nú hótað að segja sig úr hvalveiðiráðinu. Telja japönsk stjórnvöld ráðið ekki lengur þjóna markmiði sínu sem stofnun til að stýra sjálfbærri nýtingu á hvölum og hafa ennfremur hótað að stofna nýtt hvalveiðiráð.

Ársþing hvalveiðiráðsins lauk í nótt en eitt af síðustu verkum ráðsins var að samþykkja ályktun um áframhaldandi hvalveiðibann. Ályktunin var samþykkt með 37 atkvæðum gegn fjórum en fulltrúar 25 landa, þeirra á meðal Íslands, neituðu að taka þátt í atkvæðagreiðslunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×