Erlent

Yfir tuttugu manns láta lífið í hitabylgju

Frá Bangladesh.
Frá Bangladesh. MYND/AFP

Að minnsta kosti 22 hafa látið lífið, aðallega börn og gamalmenni, í mikilli hitabylgu sem nú gengur yfir Banglades. Hefur hitinn á sumum stöðum farið vel yfir 40 gráður.

Ástandið er verst í norðurhluta landsins en þar hafa hundruðir manna verið lagðir inn á spítala vegna öndunarerfiðleika og ofþornunar. Gert er ráð fyrir hitabylgjan haldi áfram út næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×