Erlent

Vilja koma í veg fyrir smygl á geislavirkum efnum

Við landamæri Rússlands og Kína.
Við landamæri Rússlands og Kína. MYND/AFP
Bandaríkjamenn og Rússar hafa komist að samkomulagi um að flýta uppsetningu búnaðar sem greina á geislavirkni á 350 stöðum við rússnesku landamærin. Með þessu vonast ríkin til að hægt verði að koma í veg fyrir smygl á kjarnorku frá Rússlandi en stefnt er að því að búnaðurinn verði kominn upp ekki seinna en árið 2011.

Smygl á kjarnorku og geislavirku efni frá Rússlandi hefur verið viðvarandi vandamál frá því Sovétríkin liðu undir lok en bara á síðasta ári komu upp 480 tilvik þar sem reynt var að smygla slíkum efnum úr landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×