Erlent

Heilsa Dana versnandi fer

Bæði andleg og líkamleg heilsa Dana fer versnandi eftir því sem fríblaðið 24 timer greinir frá. Þar segir frá rannsókn Lýðheilsustöðvar Danmerkur sem sýndi að átta af hverjum tíu Dönum hefðu fengið hausverk, hjartsláttartruflanir, verki í kroppinn eða hefðu átt erfitt með svefn á tveggja vikna tímabili sem spurt var um.

Það eru tíu prósentustigum fleiri en fyrir 20 árum þegar sams konar rannsókn var gerð. Engin einhlít skýring er sögð á þessu en bent á að of lítilli hreyfingu, aukinni streitu og slæmum vinnuaðstæðum geti verið um að kenna. Telur lýðheilsustöðin mikilvægt að bregðast við þessu þar sem kvillarnir kosti danskt samfélag mikla fjármuni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×