Erlent

Íranar fordæma bresk stjórnvöld

Rithöfundurinn umdeildi fékk riddaraorðuna í Bretlandi.
Rithöfundurinn umdeildi fékk riddaraorðuna í Bretlandi.

Íranar hafa gagnrýnt bresk stjórnvöld harðlega fyrir að veita rithöfundinum Salman Rushdie riddaraorðu. Mohammad Ali Hosseini, talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins, telur að orðuveitingin sýni hræðslu Breta við islömsk trúarbrögð.

 „Að gefa einhverjum orðu sem er á meðal hötuðustu persóna í islömsku samfélagi sýnir hversu breskir yfirmenn eru andvígir islam,“ sagði Hosseini. Bætti hann því við að með því að sýna Rushdie þennan heiður hefðu Bretar fallið mjög í áliti hjá islamstrúarmönnum. Utanríkisráðuneyti Bretlands vísar gagnrýninni á bug og segir Rushdie eiga heiðurinn fyllilega skilinn.



Skáldsaga Rushdie, Söngvar satans, olli miklu fjaðrafoki hjá múslimum víða um heim þegar hún kom út árið 1988. Árið eftir lýsti Ayatollah Khomeini, leiðtogi Írans, Rushdie réttdræpan fyrir „guðlast“ sitt gagnvart spámanninum Múhammeð. Var sú yfirlýsing dregin til baka tíu árum síðar af írönskum stjórnvöldum. Sneri Rushdie þá til baka úr tíu ára útlegð.

Rushdie, sem er 59 ára, hefur gefið út þrettán skáldsögur sem hafa flestar fengið mjög góða dóma og fjölda verðlauna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×