Erlent

Svíar sluppu með skrekkinn

Tveir óbreyttir borgarar fórust og að minnsta kosti tólf til viðbótar særðust þegar sjálfsmorðsárás var gerð á sænska bílalest NATO í norðurhluta Afganistans.



Árásin átti sér stað í afgönsku borginni Mazar-i-Sharif en Svíar reka bækistöðvar NATO rétt fyrir utan borgina. Maðurinn sem gerði árásina hélt lífi og var fluttur á sjúkrahús. Að sögn sænska hershöfðingjans Mats Danielsson særðist enginn hermaður NATO í árásinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×