Erlent

Árás á Andrei Kalitin rannsökuð

Lögreglan í Moskvu, höfuðborg Rússlands, rannsakar árás sem gerð var á rannsóknarblaðamanninn Andrei Kalitin í síðustu viku.

Kalitin greindi lögreglu frá því að árásin kynni að tengjast rannsóknarvinnu hans vegna bókar um átök í rússneska áliðnaðinum sem kemur út í ágúst. Lögregla telur að árásarmaðurinn hafi notað gúmmíkúlur.



Nefnd um vernd blaðamanna, fordæmdi árásina og skoraði á rússnesk yfirvöld að upplýsa málið. Þrettán rússneskir blaðamenn hafa verið myrtir frá árinu 2000.
-




Fleiri fréttir

Sjá meira


×