Blóðug átök í Nahr el-Bared 22. maí 2007 01:30 Stutt hlé var gert á bardögum til að flytja átján særða borgara út úr búðunum en hörð átök tóku skjótt við á ný. MYND/AFP
Svartur reykur byrgði himininn yfir palestínsku flóttamannabúðunum Nahr el Bared í útjaðri Trípólí, höfuðborgar Líbanon, þar sem hörð skothríð og sprengingar ómuðu í gær meðan að átök stjórnarhers Líbanon og liðsmanna Fatah Islam héldu áfram frá deginum áður. Harðari innanlandsátök hafa ekki átt sér stað í Líbanon frá því að fimmtán ára borgarastyrjöld lauk árið 1990. Hundruð stjórnarhermanna á skriðdrekum og vopnuðum farartækjum umkringdu flóttamannabúðirnar og snemma í gærmorgun hófu þeir skothríð á flóttamannabúðirnar sem var svarað þaðan með sprengjuvörpum. Talsmaður Fatah Islam, Abu Salim, varaði við því að ef að herinn myndi ekki láta af umsátrinu myndu samtökin herða árásir sínar. „Þetta er barátta upp á líf og dauða.“ Að minnsta kosti níu óbreyttir borgarar létust í átökunum í gær og fjörutíu særðust að sögn stjórnenda í flóttamannabúðunum. Á sunnudaginn féllu tæplega fimmtíu þeirra sem tóku beinan þátt í átökunum en ekki var staðfest hvort og hve margir óbreyttir borgarar féllu í flóttamannabúðunum á sunnudaginn. Átökin hófust þegar lögregla réðst inn á nokkra staði í Trípólí til að hafa hendur í hári nokkurra liðsmanna Fatah Islam sem grunaðir eru um aðild að bankaráni. Til skotbardaga kom og átökin undu upp á sig. Ekki hefur áður komið til slíkra átaka á milli stjórnarhersins og herskárra hópa sem hafa myndast í palestínskum flóttamannabúðum í Líbanon þar sem tugir þúsunda búa við fátækt og glæpi. Líbanskir hermenn hafa almennt ekki leyfi til að fara inn í búðirnar. Bandarísk stjórnvöld vörðu í gær aðgerðir líbanska hersins sem væri að beita sér „með löglegum hætti“ gegn „ögrunum ofbeldisfullra öfgamanna“ sem héldu til í palestínskum flóttamannabúðum.
Mest lesið Keyrði inn í hvítan vegg: „Í besta falli vítavert gáleysi“ Innlent Voru að tína dópið úr töskunni þegar löggan réðst til atlögu Innlent Þorsteinn hættur hjá Deloitte þrátt fyrir sýknu Innlent Vilja borgarlest í stað borgarlínu Innlent Þrautaganga Ingva og fjölskyldu: Svefnleysi, bræðiköst og flogveiki en engin úrræði Innlent Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Erlent Mesti snjórinn síðan í október: „Ætluðum við að gera þetta núna?“ Innlent Lögreglustjóri tilkynntur fyrir ofbeldi og áreitni á þorrablóti Innlent Væta sunnantil og töluverð hláka í höfuðborginni Veður Tína rusl til að komast á Reyki Innlent Fleiri fréttir Segjast hafa skotið hryðjuverkamenn á bandarískum báti Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Evrópskir unglingar reykja mest allra af rafrettum Ráðamenn tvísaga um markmið viðræðanna við Íran Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Fjarhægriflokkur sakaður um „kerfisbundna frændhygli“ Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Íslendingar geti verið stoltir af stuðningnum við Úkraínumenn Jagland á sjúkrahúsi í kjölfar ákærunnar Komu forsætisráðherranum í var vegna sprengjuhótunar Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Ráðast Bandaríkin á Íran? Segja Trump munu reiða sig á ráðgjöf Witkoff og Kushner Sendi Epstein sænsk kvenleiðtogaefni Nick Reiner segist saklaus af því að hafa myrt foreldra sína Áhrif stóraukins geimrusls á lofthjúpinn óþekkt Forsætisráðherra sækir minningarathöfn og fundi í Kænugarði Samþykktu Suðureyjargöng og hækkun eftirlaunaaldurs Sendiherra sem missti stöðuna vegna tengsla við Epstein handtekinn Hundruð milljarða í að verja strandir fyrir ágangi sjávar Yngsti forsætisráðherrann sór embættiseið Norðaustan stórhríð hrellir íbúa austurstrandar Bandaríkjanna Segir Trump ekkert botna í því hvers vegna Íranir gefa ekki eftir Hvað er vitað um manninn sem var skotinn við Mar-a Lago? Ófremdarástand eftir andlát voldugasta fíknaefnabaróns heims Sjá meira