Erlent

Blóðug átök í Nahr el-Bared

Stutt hlé var gert á bardögum til að flytja átján særða borgara út úr búðunum en hörð átök tóku skjótt við á ný.
Stutt hlé var gert á bardögum til að flytja átján særða borgara út úr búðunum en hörð átök tóku skjótt við á ný. MYND/AFP

Svartur reykur byrgði himininn yfir palestínsku flóttamannabúðunum Nahr el Bared í útjaðri Trípólí, höfuðborgar Líbanon, þar sem hörð skothríð og sprengingar ómuðu í gær meðan að átök stjórnarhers Líbanon og liðsmanna Fatah Islam héldu áfram frá deginum áður. Harðari innanlandsátök hafa ekki átt sér stað í Líbanon frá því að fimmtán ára borgarastyrjöld lauk árið 1990.

Hundruð stjórnarhermanna á skriðdrekum og vopnuðum farartækjum umkringdu flóttamannabúðirnar og snemma í gærmorgun hófu þeir skothríð á flóttamannabúðirnar sem var svarað þaðan með sprengjuvörpum. Talsmaður Fatah Islam, Abu Salim, varaði við því að ef að herinn myndi ekki láta af umsátrinu myndu samtökin herða árásir sínar. „Þetta er barátta upp á líf og dauða.“

Að minnsta kosti níu óbreyttir borgarar létust í átökunum í gær og fjörutíu særðust að sögn stjórnenda í flóttamannabúðunum. Á sunnudaginn féllu tæplega fimmtíu þeirra sem tóku beinan þátt í átökunum en ekki var staðfest hvort og hve margir óbreyttir borgarar féllu í flóttamannabúðunum á sunnudaginn.

Átökin hófust þegar lögregla réðst inn á nokkra staði í Trípólí til að hafa hendur í hári nokkurra liðsmanna Fatah Islam sem grunaðir eru um aðild að bankaráni. Til skotbardaga kom og átökin undu upp á sig.

Ekki hefur áður komið til slíkra átaka á milli stjórnarhersins og herskárra hópa sem hafa myndast í palestínskum flóttamannabúðum í Líbanon þar sem tugir þúsunda búa við fátækt og glæpi. Líbanskir hermenn hafa almennt ekki leyfi til að fara inn í búðirnar.

Bandarísk stjórnvöld vörðu í gær aðgerðir líbanska hersins sem væri að beita sér „með löglegum hætti“ gegn „ögrunum ofbeldisfullra öfgamanna“ sem héldu til í palestínskum flóttamannabúðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×