Erlent

Danskir hjartasjúklingar fá slæma meðferð

MYND/TeamEvent

Stór hluti þeirra tuttugu þúsund sjúklinga í Danmörku sem lagðir eru inn á spítala vegna hjartasjúkdóma fá allt of slæma meðferð. Þessu er haldið fram í nýrri rannsókn sem mældi gæði sjúkrahúsa í Danmörku. Það er danska blaðið MetroXpress sem greinir frá þessu og hefur eftir talsmanni sjúklinga í Danmörku að fréttirnar veki óhug.

Talsmenn sjúkrahúsana segja að þær mælistikur sem notaðar hafi verið í rannsókninni hafi gert allt of miklar kröfur og því sé ekki ástæða til þess að óttast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×