Erlent

Danir upplýstir um hryðjuverkahættu

Frá Strikinu í Danmörku.
Frá Strikinu í Danmörku.

Danir geta nú fylgst með því hversu mikil hryðjuverkahætta er í landinu því búið er að koma á fót sérstakri hryðjuverkagreiningadeild í landinu.

Eftir því sem fram kemur á vef Berlingske Tidende hefur deildin það hlutverk að upplýsa yfirvöld um hryðjuverkahættu í Danmörku en um leið geta almennir borgara nálgast takmarkaðan hluta af greiningunni á heimasíðu greiningardeilarinnar.

Þar kemur til að mynda fram að hryðjuverkaárás geti orðið hvenær sem er í landinu þar sem tilteknar manneskjur séu tilbúnar að láta til skarar skríða ef kallið kemur.

Þar er einnig bent á að hryðjuverkahópar í Evrópu séu stöðugt að þróa nýjar og ófyrirsjáanlegar aðferðir til árása. Mest hætta stafi af hópum og einstaklingum sem aðhyllist herskáa íslamska hugmyndafræði og að vaxandi fjöldi öfgamanna hafi alist upp á Vesturlöndum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×