Erlent

Varð sprenging um borð í Estoniu?

Minnismerki um ferjuslysið mannskæða.
Minnismerki um ferjuslysið mannskæða. MYND/AFP

Ekki er hægt að útiloka að sprenging kunni að hafa orðið um borð i ferjunni Estoniu sem sökk árið 1994. Þetta kom fram í þætti í sænska ríkisútvarpinu og er vísað í tvær nýjar rannsóknir á slysinu. Vitni hafa alla tíð haldið því fram að sprenging hafi heyrst áður en ferjan sökk og nú segir prófessor við Chalmers háskólann í Gautaborg að ekki sé hægt að útiloka sprengingu sem orök slyssins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×