Slagurinn er óvenju snemma á ferðinni 15. ágúst 2007 05:30 John Edwards, fyrrverandi öldungadeildarþingmaður, hefur sett kraft í kosningabaráttuna eins og mótframbjóðendur hans. MYND/AP
Enn eru fimmtán mánuðir til forsetakosninga í Bandaríkjunum. Samt er kapphlaupið um að verða forsetaefni flokkanna tveggja komið á fullt skrið og rúmlega það, löngu fyrr en venjulega hefur verið. Daglegt líf frambjóðendanna er strax orðið heltekið af kosningabaráttunni, með símafundum langt fram á kvöld, ekkert frí á sunnudögum og skyndibitafæði í flest mál. „Við teljum að nú verði þetta óstöðvandi,“ segir Mike Denney, helsti ráðgjafi repúblikanans John McCain í innanríkismálum. „Svo þegar verkalýðsdagurinn kemur þá erum við komin á blússandi ferð,“ bætti hann við, en verkalýðsdagurinn í Bandaríkjunum er fyrsta mánudag í september ár hvert. Annar repúblikani, Mitt Romney, tekur daginn snemma, byrjar að vinna klukkan sjö og er að í fjórtán tíma, og hefur jafnan með sér stóran plastpoka fullan af heimatilbúnu múslí sem hann notar bæði í morgunmat og til að narta í milli mála. Mestur hamagangurinn er í tveimur ríkjum, New Hampshire og Iowa, þar sem fyrstu forkosningarnar hafa venjulega verið haldnar. Niðurstaðan í þessum tveimur ríkjum skiptir máli og ræður oft úrslitum fyrir marga frambjóðendurna. Sumir heltast úr lestinni en aðrir styrkjast í baráttunni. Venjan er sú að ágúst hafi verið rólegur mánuður, en svo hefur smám saman færst líf í forsetaslaginn þegar líða tekur á haustið ári fyrir kosningarnar. Fyrstu forkosningarnar hafa síðan verið haldnar í byrjun febrúar eða lok janúar, en hafa verið að færast sífellt framar, sem á væntanlega sinn þátt í því að kosningabaráttan hefst fyrr. „Allt er að gerast fyrr í þetta skipti. Ég held að kosningabaráttan hafi bara byrjað fyrr,“ segir Patricia Harris, prestur í Nashua í New Hampshire, sem hefur hitt alla frambjóðendurna og styður demókratann Hillary Clinton. Átta demókratar og tíu repúblikanar sækjast eftir því að verða forsetaefni síns flokks í kosningunum, sem haldnar verða fyrsta þriðjudaginn í nóvember á næsta ári. Þeir eiga mikið starf óunnið. Samkvæmt nýrri skoðanakönnun segjast 64 prósent demókrata og 71 prósent repúblikana í New Hampshire ekki enn hafa gert upp hug sinn.
Mest lesið Alvöru inniveður um helgina Innlent Segir Kúbu brátt munu falla Erlent Þurfi ekki að óttast bílnúmeralesara við Sorpu Innlent Segir hvorki Jesú, Múhameð né Þór hafna yfir lög Innlent Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku Innlent Tveir grunaðir um stórfellda líkamsárás í miðbænum Innlent Listamönnum fækkar ört Innlent Hvalfjarðargöng lokuð Innlent Enn frekari dráttur á máli Margrétar Innlent Alvarlegt umferðarslys við Munaðarnes Innlent Fleiri fréttir Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Telja sjávarhæð verulega vanmetna sem gæti ógnað milljónum manna Játar að hafa haldið við aðstoðarkonu sem kveikti í sér Bæta við einu geimskoti og stefna á tunglið 2028 Íhugar að reka Noem eftir deilur við þingmenn Reyna að vernda líf áhafnar annars íransks skips Ráðast á bandarískt olíuflutningaskip en sverja af sér árás á Tyrkland Bondi neydd til að svara spurningum um Epstein-málið Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Taka beri orðum bandarískra stjórnvalda um stöðuna í Íran með fyrirvara Sökktu skipi með tundurskeyti í fyrsta sinn frá seinna stríði Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Danskur öfgamaður ákærður fyrir nauðgunarlýsingar Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Græningjar teknir fram úr Verkamanna- og Íhaldsflokki Sjá meira