Erlent

Tvö þúsund milljarðar til Ísraelsmanna

Condoleezza Rice
Condoleezza Rice

Bandaríkjastjórn mun eyða mörgum milljörðum dollara í hernaðaraðstoð til bandamanna sinna í Mið-Austurlöndum á næstu árum.

Ísraelsmenn fá 30 milljarða dollara, eða 1.865 milljarða króna. Egyptaland fær sýnu minna, eða 808 milljarða króna. Bandaríkjamenn eiga einnig í viðræðum við Sádi-Araba og fleiri ríki við Persaflóa um mögulega aðstoð.

Tilgangurinn er að bregðast við „neikvæðum" áhrifum Írans og Sýrlands á svæðinu, ásamt með samtökum Al-Kaída og Hizbollah, að sögn Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×