Erlent

Send í meðferð til Múrmansk

Garrí Kasparov segir hættulegt að gagnrýna rússnesk yfirvöld. Konan sem var lögð inn á geðspítala er í samtökum Kasparovs.
Garrí Kasparov segir hættulegt að gagnrýna rússnesk yfirvöld. Konan sem var lögð inn á geðspítala er í samtökum Kasparovs.

Rússneskur andófsmaður hefur verið neyddur til að dvelja á geðspítala nálægt Múrmansk í Rússlandi, segir skákmeistarinn og stjórnmálamaðurinn Garrí Kasparov. Hann segir að rússnesk yfirvöld séu að hefna fyrir grein sem hin 48 ára Larissa Arap skrifaði þar sem stjórn í málefnum geðfatlaðra barna var gagnrýnd. Arap, sem er í stjórnmálasamtökunum Hitt Rússland sem Kasparov leiðir, hefur verið þvinguð í meðferð á spítalanum.

Andófsmenn segja að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem pólitískir andstæðingar yfirvalda séu settir á hæli síðan Vladimír Pútín komst til valda. Þetta var algeng leið ráðamanna á Sovéttímanum til að losna við andófsmenn.

„Þetta getur gerst þegar þú gagnrýnir olíumálayfirvöld, herinn eða læknamafíuna til dæmis. Það er hættulegt að gagnrýna embættismenn því þeir gera allt til að þagga niður í manni,“ segir Kasparov.

Arap hafði farið til geðlæknis til að fá vottorð um geðheilsu vegna þess að hún var að endurnýja ökuskírteinið sitt. Hún var spurð hvort hún hefði skrifað umrædda grein. Þegar hún játti því færði lögregla hana til dómara þar sem búin voru til skjöl um geðheilsu hennar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×