Erlent

Segjast hafa vegið annan gísl frá Kóreu

„Í guðanna bænum sendið börn mín til baka svo ég geti haldið utan um þau,“ bað móðir tveggja Suður-Kóreumanna sem talibanar halda í gíslingu í Afganistan.

Móðirin beindi orðum sínum til talibana á athöfn ættmenna gíslanna í S-Kóreu í gær.

Alls 23 S-Kóreumönnum var rænt á þjóðvegi í Afganistan í júlí. Talibanar vilja skipta á þeim og jafnmörgum eigin liðsmönnum, sem haldið er í fangelsi.

Talibanar sögðu í gær að stjórn Afganistans hefði ekki komið til móts við þá og því hefði nú annar gísl verið tekinn af lífi, en sá fyrsti var veginn á miðvikudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×