Erlent

Hrapaði niður fjall eftir bónorð

Velsk kona hrapaði af fjalli í Wales eftir að kærastinn hennar bað hennar. Þurfti að sauma tíu spor í höfuð hennar eftir fallið.

Konan hrapaði tæpa tvo metra eftir bónorðið og þurfti að kalla út björgunarsveit til að koma henni niður á sjúkrahús. „Ég hafði ekki hugmynd um að hann mundi biðja mín, en þetta var indæl leið til að gera það," sagði konan. Hún sagði já þegar hún fékk meðvitund á ný.

„Fólk segir oft við mig; „þú hefðir getað sagt nei við hann, þú þurftir ekki að stökkva niður af fjalli"," bætti konan við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×